
Skuttogarinn Múlaberg SI 22 kom til Húsavíkur síðdegis í dag þeirra erinda að ná í nýtt rækjutroll.
Múlaberg, sem er annar svokallaðra tvegga Japanstogaranna sem enn eru í útgerð á Íslandi, er í eigu Ramma hf. í Fjallabyggð. Hinn er Ljósafell SU 70 frá Fáskrúðsfirði.
Togarinn hét upphaflega Ólafur Bekkur ÓF 2, hann var smíðaður í Japan fyrir Útgerðafélag Ólafsfjarðar hf. og kom í fyrsta skipti til heimahafnar þann 8. maí árið 1973.
Lesa má meira um togarann hér.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution