1434. Þorleifur EA 88 - Farsæll Máni ST 74. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Netabáturinn Þorleifur EA 88 var að veiðum á svipuðum slóðum og Sæbjörgin í morgun, þ.e.a.s innarlega á Eyjafirði. Myndin var tekin í hádeginu þegar báturinn kom til hafnar á Akureyri og frístundabáturinn Farsæll Máni ST 74 siglir hjá. Aflinn hjá Þorleifi var … Halda áfram að lesa Þorleifur og Farsæll Máni
Author: Hafþór Hreiðarsson
Sæbjörg EA 184 kemur að landi á Akureyri
2047. Sæbjörg EA 184 ex Linni SH 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Sæbjörg EA 184 frá Grímsey var að netaveiðum innarlega á Eyjafirði í morgun og var þessi mynd tekin þegar hún kom að landi á Akureyri. Þeir voru með um þrjú tonn af þorski kallarnir, í fjórar trossur. Sæbjörg EA 184 hét upphaflega Magnús Guðmundsson … Halda áfram að lesa Sæbjörg EA 184 kemur að landi á Akureyri
Tryggvi Eðvars SH 2
2400. Tryggvi Eðvars SH 2 ex Hafdís SK 4. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línubáturinn Tryggvi Eðvars SH 2 kemur hér til hafnar í Grindavík á dögunum en hann er í eigu Nesvers ehf. og er með heimahöfn í Ólafsvík. 2400. Tryggvi Eðvars SH 2 ex Hafdís SK 4. Ljósmyndir Jón Steinar 2022. Með því að … Halda áfram að lesa Tryggvi Eðvars SH 2
Náttfari og Örkin
993. Náttfari - 1420 Örkin. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Náttfari og Örkin liggja hér við flotbryggju í Húsavíkurhöfn en myndin var tekin í fyrradag. Sá fyrrnefndi er í hvalaskoðunarferðum en Örkin að koma í slipp. Bátarnir voru báðir smíðaðir í Stykkishólmi á sínum tíma, Náttfari hét upphaflega Þróttur SH 4 og var fyrsti báturinn sem … Halda áfram að lesa Náttfari og Örkin
Sandfell SU 75
2841. Sandfell SU 75 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmyndir Jón Steinar 2022. Línubáturinn Sandfell SU 75 er hér á landleið til Grindavíkur en Jón Steinar tók þessar myndir af bátnum í vikunni. Sandfell er í eigu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði og hét áður Óli á Stað GK 99. Báturinn er smíðaður hjá Seiglu á Akureyri … Halda áfram að lesa Sandfell SU 75
Sæborg við bryggju
1475. Sæborg ex Áróra RE 82. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér liggur hvalaskoðunarbáturinn Sæborg við bryggju á Húsavík í veðurblíðu gærdagsins. Sæborg er í eigu Norðursiglingar og verið er að skvera hana til fyrir sumarið. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Sæborg við bryggju
Margrét GK 33
2952. Margrét GK 33. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Jón Steinar tók þessar myndir í vikunni af línubátnum Margréti GK 33 koma til hafnar í Grindavík. Aflinn þennan dag var 11 tonn. Það er Nesfiskur ehf. sem gerir bátinn út en hann var smíðaður hjá Víkingbátum árið 2019. Margrét GK 33 er tæplega 22 BT að … Halda áfram að lesa Margrét GK 33
Húsavík, Húsavík, Siglufjörður, Húsavík
Eikarbátar í Húsavíkurhöfn 8. apríl 2022. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta eikarbáta fjóra í höfn á Húsavík en myndin var tekin í dag. Fv. Faldur, Sylvía, Örkin og Náttfari. Smíðastaðir Vestmannaeyjar, Akureyri, Stykkishólmur, Stykkishólmur. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Húsavík, Húsavík, Siglufjörður, Húsavík
Kristrún II seld til Færeyja
2774. Kristrún II RE 477 ex Kristrún RE 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Fréttir dagsins herma m.a að línuskipið Kristrún II RE 477 hafi verið selt til Færeyja þar sem heimahöfnin verður á Sandey. 200 mílur segja svo frá: Fiskkaup ehf. gekk frá samningum um sölu á Kristrúnu RE-177 (eldri). mars síðastliðinn og er söluverðið … Halda áfram að lesa Kristrún II seld til Færeyja
Háey I með 8 tonn í dag
2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Jóns Steinar Sæmundsson 2022. Línubátur GPG Seafood ehf., Háey I ÞH 295, er að róa fyrir sunnan þessar vikurnar og kom að landi í Grindavík í dag. Hún var með átta tonna. 2995. Háey I ÞH 295. Ljósmyndir Jóns Steinar Sæmundsson 2022. Með því að smella á myndirnar er … Halda áfram að lesa Háey I með 8 tonn í dag









