
Þórunn Sveinsdóttir VE 401 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum en hún var smíðu fyrir ÓS hf. í Stálvík í Garðarbæ 1971.
Þegar Tryggvi tók þessa mynd hafði tognað dálítið á bátnum og hann yfirbyggður með nýrri brú.
Vinnslustöðin kaupir bátinn árið 1992 þegar ný Þórunn Sveinsdóttir VE 401 leysti hann af hólmi. Báturinn fékk nafnið Kristbjörg og var VE 70.
Árið 1997 fær hann nafnið Fjölnir eftir að Vísir hf. í Grindavík hóf að gera hann út. Hann var GK 257 sem átti eftir að breytast í GK 7 og ÍS 7 . Árið 2005 er hann Fjölnir II GK 219 um tíma áður en hann er seldur til Þorlákshafnar þar sem hann fékk nafnið Arnarberg ÁR 150.
Báturinn var afskráður 19. febrúar 2014 og fór í brotajárn.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.