
Jón Steinar flaug drónanum í gær út að Maroni GK 522 þar sem báturinn var að draga netin út af Straumsvík.
Kallarnir virtust vera að fiska vel á þessum elsta stálbát flotans sem enn er í drift.
Maron hét upphaflega Búðafell SU 90 og var smíðaður árið 1956 í Scheepswerf Kraaier skipasmíðastöðinni í Zaandam í Hollandi.



363. Maron GK 522 ex Maron HU 522. Ljósmyndir Jón Steinar 2023.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution