
Línuskipið Tjaldur II SH 370 frá Rifi liggur hér við bryggju í Reykjavík um árið.
Skipið var smíðað í Noregi fyrir KG fiskverkun á Rifi árið 1992. Líkt og systurskipið Tjaldur SH 270.
Tjaldur II var seldur til Noregs árið 1987 þar sem hann fékk nafnið Kamaro SF-8-S og síðar Vestkapp SF-8-S og var með heimahöfn í Måløy.
Hraðfrystihús Hellisands keypti skipið aftur í íslenska flotann og kom það til landsins í janúar 2008. Fékk það þá nafnið Örvar SH 777 og leysti eldra skip með sama nafni af hólmi.
Skipið er 43,21 metra langt og 9 metra breitt og mælist 411 brl./689 BT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution