573. Hólmsteinn GK 20 ex Hafdís GK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér kemur mynd af Hólmsteini GK 20 með nýju brúnna en að öðru leyti vísa ég í færsluna um bátinn sem ég setti inn á dögunum. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the … Halda áfram að lesa Hólmsteinn GK 20
Month: janúar 2023
Petra ÍS 78
2335. Petra ÍS 78 ex Petra HU 27. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Petra ÍS 78 var upphaflega HU 27 og smíðuð fyrir Ástvald Pétursson á Hvamstanga hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1998. Petra, sem er af Cleopatra 28 gerð, varð ÍS 78 árið 1999 og heimahöfnin Þingeyri en þar tók Hreiðar Olgeirsson þessa mynd. Petra var … Halda áfram að lesa Petra ÍS 78
Björg Jónsdóttir ÞH 321
263. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Gandí VE 171. Ljósmynd Pétur Jónasson. Á þessari ljósmynd Péturs Jónassonar gefur að líta Björgu Jónsdóttur ÞH 321 sem upphaflega hét Þorbjörn II GK 541 frá Grindavík. Báturinn var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram í Djupvík í Svíþjóð en báturinn var 168 brl. … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321
Suðurey VE 11
3016. Suðurey VE 11 ex Ginneton GG 203. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir af Suðurey VE 11 við makrílveiðar sumarið 2022. Suðurey VE 11 bættist í Eyjaflotann fyrir rúmu ári en hún var keypt frá Svíþjóð þar sem hún bar nafnið Ginneton GG 203. Skipið var smíðað árið 2006 og er 62 … Halda áfram að lesa Suðurey VE 11
Capitan Demidenko
IMO:8907137. Capitan Demidenko MK-0556 ex Kristina. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Þennan þekkja eflaust einhverjir en HB Grandi hf. keypti skipið árið 2004 og nefndi Engey RE 1. Í dag heitir það Kapitan Demidenko sem var reyndar upphaflega nafn togarans en áður en hann fékk Engeyjarnafnið hét hann Jason. Hólmgeir Austfjörð tók þessa mynd af togaranum … Halda áfram að lesa Capitan Demidenko
Haförn ÞH 26
1414. Haförn ÞH 26 ex Gulltoppur ÁR 321. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Haförn ÞH 26 kemur hér til hafnar á Húsavík í byrjun septembermánaðar árið 2009. Haförn hét upphaflega Vöttur SU 3 og var smíðaður í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri árið 1975. Vöttur SU 3 var með heimahöfn á Eskifirði en var seldur til … Halda áfram að lesa Haförn ÞH 26
Álftafell SU 100
1126. Álftafell SU 100 ex Villi í Efstabæ BA 214. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Álftafell SU 100 liggur hér við bryggju á Stöðvarfirði sumarið 2004 en þaðan gerði Kross ehf. bátinn út á árunum 2002 - 2007. Báturinn hét upphaflega Skálavík SU 500 og var smíðuð árið 1970 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. fyrir Þjóðrek hf. … Halda áfram að lesa Álftafell SU 100
Hólmsteinn GK 20
573. Hólmsteinn GK 20 ex Hafdís GK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hólmsteinn GK 20 kemur hér að landi í Sandgerði um árið og enn með gömlu brúna en kominn hvalbakur. Upphaflega hét báturinn Hafdís GK 20 og var smíðaður í Hafnarfirði árið 1946. Hann var 43 brl. að stærð og smíðaður hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. … Halda áfram að lesa Hólmsteinn GK 20
Ísnes við bryggju á Húsavík
1804. Ísnes ex Dollart. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ísnes skip, Nesskipa hf., liggur hér viðð hafnargarðinn á Húsavík sem í dag er nefndur Norðurgarðurinn. Myndin er sennilega frá því um 1990 +. Ísnes var smíðað árið 1976 í Þýskalandi og var 2,978 GT að stærð. Skrifa var en kannski má segja er því frá árinu 2015 … Halda áfram að lesa Ísnes við bryggju á Húsavík
Cuxhaven í Hafnarfjarðarhöfn
IMO 9782778. Cuxhaven NC 100. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Maggi Jóns tók þessa mynd í Hafnarfirði í fyrradag þar sem verið var kara Cuxhaven hinn þýska fyrir veiðiferð á Grænlandsmið. Cuxhaven NC 100 er í eigu Deutsche Fischfang Union, dótturfélags Samherja í Þýskalandi. Cuxhaven NC 100 sem hannaður er af Rolls Royce er 81,22 metrar að … Halda áfram að lesa Cuxhaven í Hafnarfjarðarhöfn









