Barði NK 120

2865. Barði NK 120 ex Börkur II NK 122. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022.

Skip Síldarvinnslunnar, Barði NK 120, sést hér yfirgefa Akureyri á dögunum en þar var skipið í slipp.

Fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar í dag að nú þegar kolmunnaveiðum er lokið í bili eru uppsjávarskip Síldarvinnslunnar undirbúin fyrir makrílvertíð sem gert er ráð fyrir að hefjist um eða upp úr 20. júní.

Grétar Örn Sigfinnsson, rekstrarstjóri útgerðar fyrirtækisins, greindi heimasíðunni frá undirbúningsvinnunni.

Beitir NK er í Norðfjarðarhöfn og þar er unnið að hefðbundnu viðhaldi skipsins auk þess sem það verður málað og snurfusað.

Börkur NK kom til Skagen 25. maí sl. en þar fer skipið í slipp hjá Karstensens skipasmíðastöðinni og framkvæmd á því ársskoðun. Gert er ráð fyrir að ársskoðunin taki um það bil þrjár vikur. Á fyrsta árinu hefur Börkur veitt um 80.000 tonn og reynst vel í alla staði.

Barði NK fór í slipp á Akureyri að lokinni loðnuvertíð og var þar ýmsu viðhaldi sinnt. Meðal annars var vélin tekin upp og skipið málað hátt og lágt.

Bjarni Ólafsson AK verður þrifinn vel og vandlega að lokinni kolmunnavertíðinni og síðan verður skipið sett í geymslu. Áhöfnin á Bjarna mun fara yfir á Barða og mun makrílvertíðin verða fyrsta verkefni hennar á því skipi.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s