
Hér má sjá togbátinn Geira Péturs ÞH 344 láta úr höfn á Húsavík snemma á tíunda áratug síðustu aldar.
Geiri Péturs var smíðaður í Noregi árið 1984 og hét upphaflega Rosvik en Korri hf. á Húsavík keypti hann til landsins sumarið 1987.
Hann var seldur aftur til Noregs árið 1996 þar sem hann fékk nafnið Lysnes. Hann er farinn í brotajárn fyrir einhverjum árum síðan. Báturinn var 182 brl. að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.
Geiri Péturs var alltaf eins og mubla meðan að hann var á Húsavík.
Líkar viðLíkar við