Særún EA 251

2711. Særún EA 251 ex Elli P SU 206. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Særún EA 251 kemur hér til hafnar á Árskógssandi í gærmorgun en hún er á handfæraveiðum. Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og hét upphaflega Lúkas ÍS 71 og var í eigu Álfsfells ehf. á Ísafirði.  … Halda áfram að lesa Særún EA 251

Rósborg SI 29

6579. Rósborg SI 29 ex Rósborg ÍS 29. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Strandveiðibáturinn Rósborg SI 29 kemur hér úr róðri í gær Ólafur Baldur Gunnarsson gerir hann út frá Siglufirði. Rósborg hét upphaflega Silvía HF 152 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1984. Árið 1998 var hann keyptur til Suðureyrar við Súgandafjörð þar … Halda áfram að lesa Rósborg SI 29

Berglín heldur til veiða

1905. Berglín GK 300 ex Jöfur ÍS 172. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Rækjutogarinn Berglín GK 300 landaði á Siglufirði í dag og voru þessar myndir teknar þegar hún lét aftur úr höfn undir kvöld. Berglín GK 300, sem er í eigu Nesfisks hf. í Garði, var smíðuð í skipasmíðastöðinni Stálvík í Garðabæ og hét upphaflega … Halda áfram að lesa Berglín heldur til veiða

Wilson Nantes við Bökugarðinn

Wilson Nantes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Nantes liggur nú við Bökugarðinn en verið er að skipa upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Skipið hefur komið til Húsavíkur áður og það í sömu erindagjörðum. Skipið var smíðað árið 2011 og siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Walletta. Það er 123 metra langt og … Halda áfram að lesa Wilson Nantes við Bökugarðinn

Halldór NS 302 kom til Húsavíkur í morgun

2672. Halldór NS 302 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Halldór NS 302 frá Bakkafirði kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar hann var hífður hið snarasta á land til skverunar.  Hann er í eigu Halldórs fiskvinnslu ehf. á Bakkafirði sem er í eigu GPG Seafood á Húsavík. … Halda áfram að lesa Halldór NS 302 kom til Húsavíkur í morgun

Harðbakur á útleið frá Grindavík

2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar tók þessar myndir af Harðbak EA 3 þar sem hann var á útleið frá Grindavík síðdegis í dag. Harðbakur hafði komið til hafnar í morgun vegna bilerís og landaði 26 tonnum en togarinn hafði nýhafið veiðiferð þegar bilunin kom upp. 2963. Harðbakur EA 3. … Halda áfram að lesa Harðbakur á útleið frá Grindavík