Kristbjörg ÞH 44

541. Kristbjörg ÞH 44 ex Hallsteinn EA 130. Ljósmynd Pétur Jónasson.

Það er vel í Kristbjörginni þarna og heyskapur í fullum gangi í brekkunni en Olgeir Sigurgeirsson í Skálabrekku gerði bátinn út ásamt sonum sínum Siguði og Hreiðari.

Báturinn var smíðaður í Danmörku 1934 og hét upphaflega Ægir GK 8, 22 brl. að stærð, og var úr Garðinum. Síðar hét hann Hersteinn ÁR, Hersteinn RE, Hallsteinn EA og loks Kristbjörg ÞH 44 árið 1963. 

Kristbjörg var gerð út frá Húsavík til vorsins 1970 er hann var seldur suður í Sandgerði. Þar hélt báturinn nafni sínu en verður GK 404 og endar ævi sína, ef hægt er að tala um ævi báta, þann 13 nóvember 1971 þegar hann strandaði á Stafnesi og eyðilagðist.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Ein athugasemd á “Kristbjörg ÞH 44

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s