
Frystitogarinn Sólberg ÓF 1 er hér við ýsuveiðar fyrir vestan land á dögunum.
Þessi glæsilegi frystitogari er hannaður af Skipsteknisk í Noregi en smíðaður fyrir Rammann hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi.
Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar að lengd, 15,4 metrar á breidd og alls 3.720 brúttótonn.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution