
Hér liggur Örvar BA 14 við bryggju í Reykjavík sumarið 1974. Greinilega verið að skvera bátinn sem keyptur var til Patreksfjarðar frá Skagaströnd veturinn áður.
Það var Hraðfrystihúsið Skjöldur h/f sem keypti Örvar og kom hann til nýrrar heimahafnar á Patreksfirði í janúar 1974.
Báturinn var smíðaður í Mandal í Noregi 1968 en keypt til Íslands og kom það til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1970. Þá hét það Skrolsvik T-84-TN en Skagstrendingar nefndu hann Örvar HU 14.
Báturinn var yfirbyggður árið 1977.
Örvar BA 14 var síðar seldur Hraðfrystihúsi Hellisands h/f sem nefndi hann Rifsnes SH 44.
Í dag heitir hann Fjölnir GK 157 frá Grindavík.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution