Mekhanik Sergey Agapov MK 0538. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2017. Mekhanik Sergey Agapov heitir þetta risaskip sem Börkur Kjartansson myndaði á miðunum árið 2017. Það er 115 metra langt og 20 metra breitt. 8,278 GT að stærð. Smíðað 2014 í Nanindah Mutiara Shipyard, í Batam í Indónesíu og siglir undir rússnesku flaggi með heimahöfn í Murmansk. Með því … Halda áfram að lesa Mekhanik Sergey Agapov
Month: febrúar 2019
Garðar GK 141
180. Garðar GK 141 ex Jón Halldórsson RE 2. Ljósmynd Ágúst Guðmundsson. Garðar GK 141 kemur hér til hafnar í Grindavík um árið en myndina tók Ágúst Guðmundsson. Ég skrifaði um bátinn á gömlu síðunni en endurbirti það hér: Sigrún AK 71 var smíðuð á Akranesi 1962 og mældist þá 139 brl. að stærð. Hún var … Halda áfram að lesa Garðar GK 141
Wilson Caen á Skjálfanda
Wilson Caen ex Dutch Navigator. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Wilson Caen hefur legið við stjóra fyrir utan Húsavík síðan í gærmorgun. Þar hafa skipverjar beðið eftir því að röðin komi að þeim við Bökugarðinn en skipið verður losað á morgun. Skipið, sem var smíðað árið 1998 og mælist 2,999 GT að stærð, er með … Halda áfram að lesa Wilson Caen á Skjálfanda
Jónína Brynja ÍS 55
2868. Jónína Brynja ÍS 55. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2014. Jónína Brynja ÍS 55 var smíðuð fyrir Jakob Valgeir ehf. í Bolungarvík hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði árið 2013. Jónína Brynja ÍS 55 leysti af hólmi eldri bát útgerðinnar sem strandaði við Straumnes í desember 2012. Báturinn mælist 30 brúttótonn að stærð og er í … Halda áfram að lesa Jónína Brynja ÍS 55
Mikil umsvif við stórskipahöfnina
Þrjú flutningaskip á eða við Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Mikil umferð flutningaskipa hefur verið til Húsavíkur það sem af er ári og er hún tilkomin vegna kísilvers PCC BakkiSilicon hf. á Bakka. Eitt skip, Edenborg, fór frá Húsavík í morgun eftir að hafa losað hráefnisfarm og þegar líða tók á morguninn kom … Halda áfram að lesa Mikil umsvif við stórskipahöfnina
Bergey VE 544 seld til Grundarfjarðar
2744. Bergey VE 544. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Í gær var undirritaður samningur um að útgerðarfélagið Bergur-Huginn í Vestmannaeyjum, dótturfélag Síldarvinnslunnar, selji Guðmundi Runólfssyni hf. í Grundarfirði togskipið Bergey VE 544. Í tilkynningu frá Síldarvinnslunni eiganda Bergs-Hugins, kemur fram að gert sé ráð fyrir að skipið verði afhent G.Run. í síðasta lagi í september. Þar … Halda áfram að lesa Bergey VE 544 seld til Grundarfjarðar
Daníel SI 152
482. Daníel SI 152 ex Bjarnarvík ÁR 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Daníel SI 152 er eflaust mest myndaði bátur landsins þar sem hann stendur og grotnar niður í slippnum á Siglufirði. Siglfirðingur hf. á Siglufirði keypti bátinn ásamt aflaheimildum frá Þorlákshöfn snemma árs 1989 en þá hét hann Bjarnarvík ÁR 13. Honum var gefið nafnið … Halda áfram að lesa Daníel SI 152
Ostermarsch á Skjálfanda
Ostermarsch á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Ostermarsch hefur lónað fyrir utan Húsavík síðan í nótt en það er að koma með hraéfnisfarm fyrir PCC á Bakka. Edenborg er enn undir krananum hjá Eimskip við Bökugarðinn og því bíður Ostermarsch. Selfoss er þó á undan í röðinni en hann er væntanlegur á morgun. Ostermarsch … Halda áfram að lesa Ostermarsch á Skjálfanda
Fálkatindur NS 99
2866. Fálkatindur NS 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Fálkatindur NS 99 var smíðaður hjá Seiglu ehf. á Akureyri árið 2014 fyrir Glettu litlu ehf. á Borgarfirði eystri. Fálkatindur fór amk. tvo róðra og landaði á Húsavík áður en hann hélt til heimahafnar á Borgarfirði eystri. Austurfrétt sagði svo frá komu hans 3. apríl 2014: Nýr … Halda áfram að lesa Fálkatindur NS 99
Edenborg við bryggju á Húsavík
Edenborg við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hollenska flutningaskipið Edenborg kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið naut aðstoðar dráttarbátsins Seifs frá Akureyri við að leggjast að Bökugarðinum en það er 7,196 GT að stærð, smíðað árið 2010. Eins og áður segir er hollenskt með heimahöfn í Delfzijl. Edenborg við … Halda áfram að lesa Edenborg við bryggju á Húsavík









