Árni ÞH 127

1493. Árni ÞH 127 ex Ástvaldur NK 52. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Árni ÞH 127 sem hér sést koma til hafnar á Húsavík var smíðaður hjá Trésmiðju Austurlands hf. á Fáskrúðsfirði árið 1977. Báturinn, sem var 6,30 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Draupni Marteinsson á Neskaupstað sem nefndi bátinn Ástvald NK 52. Bræðurnir Bragi og … Halda áfram að lesa Árni ÞH 127 →

Þrír rauðir í Hafnarfirði

1144. Aron HF 555, 1224. Faxaberg HF 104, 1197. Hrefna GK 58. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta þrjá fagurrauða smábáta í Hafnarfjarðarhöfn um 1990 og allir voru þeir smíðaðir þar í bæ. Næstur bryggjunni er Aron HF 555 sem upphaflega hét Aron ÞH 105 og smíðaður fyrir Guðmund A. Hólmgeirsson á Húsavík árið … Halda áfram að lesa Þrír rauðir í Hafnarfirði →

Hamra-Svanur SH 201

1757. Hamra-Svanur SH 201 ex Oddeyrin EA 210. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Hamra-Svanur SH 201 hét upphaflega Oddeyrin EA 210 og var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri. Togarinn var annað tveggja svokallaðra raðsmíðaskipa sem voru smíðuð í Slippstöðinni á þessum árum, hitt var Nökkvi HU 15. Árið 1996 keypti Sigurður Ágústsson ehf. Oddeyrina EA 210 og … Halda áfram að lesa Hamra-Svanur SH 201 →

Ársæll Sigurðsson HF 80

1873. Ársæll Sigurðsson HF 80 ex Már GK 265. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Ársæll Siguðrsson HF 80 sem hér kemur að landi í Sandgerði vorið 2008 var smíðaður í Bátalóni árið 1987. Upphaflega hét hann Bjarni KE 23 og var 11,70 brl. að stærð búinn 235 hestafla Volvo Penta. Smíðaður fyrir Hauk St. Bjarnason, Keflavík. … Halda áfram að lesa Ársæll Sigurðsson HF 80 →

Blængur NK 117

2197. Blængur NK 117. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Haustið 1993 kom til Neskaupstaðar nýr frystitogari sem Síldarvinnslan hf. festi kaup á frá Spáni. Blængur NK 117 hét hann og tók Þorgeir Baldursson þessa mynd af honum á Eyjafirði. Í 11. tbl. Ægis það ár sagði m.a: 28. september sl. kom skuttogarinn Blængur NK 117 í fyrsta … Halda áfram að lesa Blængur NK 117 →

Strandferðaskipið Búrfell

IMO 7383114. Búrfell ex Hekla. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Strandferðaskipið Búrfell, sem kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn, hét áður Hekla og var í þjónustu Ríkisskipa. Skipið var í eigu Ríkissjóðs Íslands og keypt hingað til lands árið 1984, þá tíu ára gamalt. Skipið hafði þá verið hér í leigu frá árinu 1981 og siglt á … Halda áfram að lesa Strandferðaskipið Búrfell →

Gleðilegt nýtt ár

Flugeldasýning við áramótabrennu Húsvíkinga. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Gleðilegt nýtt ár →