
Amma Gússa EA 19 hét upphaflega Hvítingur SU 167 og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Mótun í Hafnarfirði árið 1988.
Árið 1990 varð Hvítingur KE 230 með heimahöfn í Keflavík en ári síðar fékk hannnafnið Sigurvin GK 52 með heimahöfn í Garði.
Árin 1994 – 2002 hét báturinn Kló ST 67með heimahöfn á Kollafjarðarnesi á Ströndum.
Frá árinu 2002 hét hann Kristján S SH 23 með heimahöfn í Grundarfirði og þar var hann í fjögur ár.
Árið 2006 fór báturinn austur á Bakkafjörð þar sem hann fékk nafnið Hróðgeir Hvíti NS 89, Bakkafirði og þar var hann þangað til í vor að hann fékk nafnið Amma Gússa EA 19 með heimahöfn í Grímsey.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution