Það bar svo við á Húsavík í dag….

1937. Björgvin EA 311. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Það bar svo við á Húsavík í dag að togari kom til hafnar en stoppaði hann þó stutt við. Um er að ræða togara þann sem Dalvíkingar létu smíða fyrir sig í Noregi árið 1988 og nefndu Björgvin EA 311. Á Dalvík hefur hann átt heimahöfn allar … Halda áfram að lesa Það bar svo við á Húsavík í dag…. →

Sæunn ÞH 22

7158. Sæunn ÞH 22 ex Þyrí. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sómabáturinn Sæunn ÞH 22 er hér á skriði einn Sjómannadaginnn á Skjálfandaflóa. Sómi 800 held ég örugglega, smíðaður 1989 í Hafnarfirði. Eigandi Sævar Guðbrandsson frá árinu 1991. Hét áður Þyrí. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Sæunn ÞH 22 →

Þorsteinn GK 15

926. Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eik­ar­bát­ur­inn Þor­steinn GK 15, sem gerður var lengi út frá Raufar­höfn, kemur hér að landi á Húsavík um árið. Báturinn var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík í Fal­ken­berg í Svíþjóð árið 1946 og hefur alla tíð heitið Þorsteinn. Upphaflega EA 15. Þorsteinn er … Halda áfram að lesa Þorsteinn GK 15 →

Ófeigur III VE 325

707. Ófeigur II VE 325. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Ófeigur III VE 325, sem hér siglir inn Reyðarfjörð, var smíðaður í Hollandi árið 1955 og hét sama nafninu alla tíð. Eigendur hans frá upphafi árs 1955 voru þeir Þorstein Sigurðsson og Ólaf Sigurðsson í Vestmannaeyjum. Báturinn sem upphaflega mældist 66 brl. að stærð var lengdur á … Halda áfram að lesa Ófeigur III VE 325 →

Ársæll Sigurðsson HF 80

2468. Ársæll Sigurðsson HF 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Ársæll Sigurðsson HF 80, sem hér sést koma til hafnar í Þorlákshöfn í marsmánuði 2006, var smíðaður í Kína árið 2001. Báturinn, sem upphaflega var í eigu Viðars Sæmundssonar í Hafnarfirði, heitir í dag Guðbjörg GK 77 og lesa má um hana hér. 2468. Ársæll Sigurðsson … Halda áfram að lesa Ársæll Sigurðsson HF 80 →

Dagfari ÞH 40 við bryggju á Húsavík

973. Dagfari ÞH 40. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á þesari mynd Hreiðars Olgeirssonar liggur Dagfari ÞH 40 við bryggju á Húsavík og landar síld. Þetta var sá fyrri, sem kom 1965 og fékk nafnið Ljósfari ÞH 40 þegar sá seinni kom árið 1967. Báðir smíðaðir í Boizenburg í A-Þýskalandi fyrir Barðann hf. á Húsavík. Með því … Halda áfram að lesa Dagfari ÞH 40 við bryggju á Húsavík →

Hafsúla BA 741

1470. Hafsúla BA 741 ex Hafsúla ÍS 741. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Hafsúla BA 741 sem er á þessari mynd Þorgeirs Baldurssonar heitir Salka í dag og er hvalaskoðunarbátur á Húsavík. Upphaflega Hafsúlan SH 7, smíðuð fyrir Halldór S. Sveinsson í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1976. Afhent í janúar 1977, 37 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Hafsúla BA 741 →