Fróði ÁR 33

10. Fróði ÁRr 33 ex Arnarnes GK 52. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggur Fróði ÁR 33 frá Stokkseyri við bryggju í Hafnarfirði þar sem hann hefur verið í slipp og skverun. Handan bryggjunnar liggur Náttfari HF 185. Fróði Ár 33 hét upphaflega Arnarnes GK 52 og var smíðaður árið 1963 í Stálsmiðjunni hf.í Reykjavík. Báturinn … Halda áfram að lesa Fróði ÁR 33 →

Hallsteinn EA 130

541. Hallsteinn EA 130 ex Hersteinn RE 351. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1963. Hallsteinn EA 130 er hér við bryggju á Akureyri í októbermánuði árið 1963 en þar beið hann nýrra eigenda. Þeir voru Olgeir Sigurgeirsson og synir hans Sigurður og Hreiðar sem tók þessa mynd. Þeir höfðu bátaskipti á Akureyri, komu siglandi á Nirði ÞH … Halda áfram að lesa Hallsteinn EA 130 →

Bátar við bryggju á Húsavík

Bátar við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bátar við bryggju á Húsavík um árið, sést í skut Fanneyjar ÞH 130 og Kristbjörg ÞH 44 liggur utan á Sæljóni EA 55 frá Dalvík. Aftan við þá liggur Sæborg ÞH 55. Sæljónið sökk haustið 1988 en hinir þrír voru seldir frá Húsavík. Fanney og Sæborg komu … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Húsavík →

Hið nýja skip Fiskkaupa kom til Reykjavíkur í dag

IMO 9249398. Argos Froyanes JT9 ex Froyanes. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2021. Fiskiskipið Argos Froyanes, sem Fiskkaup hf. hefur fest kaup, kom til hafnar í Reykjavík í dag. Skipið, sem reyndar er komið á Íslenska skipaskrá undir nafninu Kristrún RE 177 og með skipaskrárnúmerið 3017, var smíðað 2001. Skipið sem stundað hefur veiðar á tannsfiski … Halda áfram að lesa Hið nýja skip Fiskkaupa kom til Reykjavíkur í dag →

Svanur RE 45 við Norðurgarðinn

3015. Svanur RE 45 ex Ilvid GR-18-318 Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Svanur RE 45, nóta- og togskip í eigu Brims hf. liggur hér við Norðurgarðinn í Húsavíkurhöfn. Skipið hét áður Ilvid GR-18-318 og er nýkomið í flota Brims. Svanur RE 45 hét upphaflega Strand Senior og var smíðað árið 1999, lengd skipsins er 67 metrar og … Halda áfram að lesa Svanur RE 45 við Norðurgarðinn →