Beitir á rækjuveiðum

226. Beitir NK 123 ex Óli Óskars RE 175. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Beitir NK 123 frá Neskaupstað er hér að rækjuveiðum um árið en það var Síldarvinnslan hf. sem gerði hann út. Beitir NK 123 hét áður Óli Óskars og var smíðaður í Vestur-Þýskalandi árið 1958. Hann hét upphaflega Þormóður goði og var í fyrstu … Halda áfram að lesa Beitir á rækjuveiðum →

Salka komin upp í slipp

1470. Salka ex Pétur afi SH 374. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hvalaskoðunarbáturinn Salka er kominn upp í Húsavíkurslipp til skverunar. Salka var smíðuð í Skipasmíðastöðinni Dröfn h.f í Hafnarfirði árið 1976 og hét upphaflega Hafsúlan SH 7.  Sölkusiglingar ehf. á Húsavík eignuðust bátinn haustið 2016 og var hann gerður var upp í Skipavík í Stykkishólmi … Halda áfram að lesa Salka komin upp í slipp →

Silver Moon á Húsavík

IMO 9838618. Silver Moon. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Slemmtiferðaskipið Silver Moon kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem var smíðað árið 2020, er 212,18 metrar að lengd, 27 metra breitt og mælist 40.844 GT að stærð. Það siglir undir fána Bahama og tekur 596 farþega. IMO 9838618. Silver Moon. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Silver Moon á Húsavík →

Sigluvík SI 2

1349. Sigluvík SI 2. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1998. Siglufjarðartogarinn Sigluvík SI 2 á toginu árið 1998 en hún var einn Spánartogaranna af minni gerðinni. Sigluvík SI 2, sem smíðuð var fyrir Þormóð ramma h.f. á Siglufirði kom til landsins þann 7. apríl 1974. Hún var smíðuð hjá Astiller skipasmíðastöðinni í Huelva á Spáni og var … Halda áfram að lesa Sigluvík SI 2 →

Spitsbergen kom í morgun

IMO 9434060. Spitsbergen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Farþegaskipið Spitsbergen kom ti Húsavíkur í morgun en það er gert út af Hurtigruten í Noregi. Spitsbergen var smíðað árið 2009 hjá skipasmíðastöðinni Estaleiro Navais de Viana do Castelo í Viana do Castelo í Portúgal. Skipið var allt endurnýjað árið 2016 en það tekur 335 farþega. Spitzbergen er … Halda áfram að lesa Spitsbergen kom í morgun →

Wilson North kom til Húsavíkur

IMO 9430947. Wilson North. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Wilson North kom til hafnar á Húsavík nú undir kvöld og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem er 123 metrar á lengd og 16 metra breitt, kom með trjáboli til PCC á Bakka. Það mælist 6,118 GT að stærð. Wilson North var smíðað árið 2010 og siglir undir … Halda áfram að lesa Wilson North kom til Húsavíkur →

Barði NK 120

2865. Barði NK 120 ex Börkur II NK 122. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022. Skip Síldarvinnslunnar, Barði NK 120, sést hér yfirgefa Akureyri á dögunum en þar var skipið í slipp. Fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar í dag að nú þegar kolmunnaveiðum er lokið í bili eru uppsjávarskip Síldarvinnslunnar undirbúin fyrir makrílvertíð sem gert er ráð … Halda áfram að lesa Barði NK 120 →

Bjössi Sör á leið í hvalaskoðun

1417. Bjössi Sör ex Breiðdælingur SU 62. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hvalaskoðunarbáturinn Bjössi Sör siglir á Skjálfandaflóa í morgun. Báturinn hét upphaflega Sólrún EA og var smíðaður fyrir Sólrúnu h/f á Litla-Árskógssandi en hún var síðasti báturinn sem var smíðaður hjá Skipasmíðastöð KEA. Hér má lesa nánar um bátinn en Norðursigling keypti hann frá Breiðdalsvík haustið 2002. … Halda áfram að lesa Bjössi Sör á leið í hvalaskoðun →