IMO: 9171034. Smaragd M 64 HØ. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 2001. Norska uppsjávarveiðiskipið Smaragd M 64 HØ frá Herøy á siglingu árið 2001 en það var smíðað árið 1999. Ekki með öllu ókunnugt Íslendingum því Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði keypti skipið til landsins sumarið 2014 og gaf því nafnið Hoffell SU 80. Skipið er sem fyrr segir … Halda áfram að lesa Smaragd M 64 HØ
Klara Sveinsdóttir á toginu
1638. Klara Sveinsdóttir SU 50 ex Drangavík ST 71. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1993. Rækjuskipið Klara Sveinsdóttir SU 50 frá Fáskrúðsfirði togar hér á rækjuslóðinni árið 1993. Giska á að þetta sé austan við land. Akkur hf. á Fáskrúðsfirði gerði skipið út sem var 292 tonn að stærð. Smíðað í Noregi 1978 og keypt notuð til … Halda áfram að lesa Klara Sveinsdóttir á toginu
Andey SF 222
1980. Andey SF 222 ex Andey SU 210. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1996. Andey SF 222 er hér á rækjuslóðinni árið 1996 og komin í gráa Frostalitinn en enn skráð SF 222. Um Andey má lesa nánar hér en hún var smíðuð í Póllandi árið 1989. 1980. Andey SF 222 ex Andey SU 210. Ljósmyndir Olgeir … Halda áfram að lesa Andey SF 222
Ronja Christopher við Kópasker
IMO 9878955. Ronja Christopher. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Norska brunnskipið Sonja Christopher var framundan Röndinni á Kópaskeri í gær en þar var verið að dæla seiðum úr nýju landeldisstöð Rifóss út í skipið. Þaðan er svo siglt með seiðin austur á firði þar sem þau er sett í sjókvíar á vegum Fiskeldis Austfjarða. Ronja Christopher … Halda áfram að lesa Ronja Christopher við Kópasker
Háey I á Raufarhöfn í dag
2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar þegar línubáturinn Háey I ÞH 295 kom til hafnar á Raufarhöfn, sem er hennar heimahöfn. Það er GPG Seafood sem gerir bátinn út en hann hóf veiðar í lok síðasta árs. Fyrst um sinn var landað á Húsavík en … Halda áfram að lesa Háey I á Raufarhöfn í dag
Grindvíkingur
1512. Grindvíkingur GK 606. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1994. Þessa myndasyrpu af Grindvíkingi GK 606 tók Olgeir Sigurðsson árið 1994 skipið var gert út af Fiskanesi í Grindavík. Hér má lesa nánar um Grindvíking GK 606 en hann var smíðaður árið 1978. 1512. Grindvíkingur GK 606. Ljósmyndir Olgeir Sigurðsson 1994. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Grindvíkingur
Hrímbakur EA 306
1473. Hrímbakur EA 306 ex Bjarni Herjólfsson ÁR 200. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1991. ÚA togarinn Hrímbakur EA 306 er hér á miðunum árið 1991 en myndina tók Olgeir Sigurðsson. Togarinn hét upphaflega Bjarni Herjólfsson ÁR 200 og var smíðaður í Póllandi árið 1977. Hrímbakur EA 306 var 488 brl. að stærð búinn 2200 hestafla Sulser aðalvél. … Halda áfram að lesa Hrímbakur EA 306
Aldey á toginu
1245. Aldey ÞH 110 ex Stokksey ÁR 50. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1994. Rækjubáturinn Aldey ÞH 110 á toginu en hún var gerð út af Höfða hf. á Húsavík. Báturinn var smíðaður árið 1972 á Akureyri fyrir Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. og Erling Pétursson í Vestmannaeyjum. Hann hét upphaflega Surtsey VE 2. Í upphafi mældist hann 105 … Halda áfram að lesa Aldey á toginu
Geiri Péturs
1872. Geiri Péturs ÞH 344 ex Skúmur ÍS 322. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1997. Siggi Valli föðurbróðir minn hefði orðið áttræður í dag en hann lést haustið 2005. Það er því tilvalið að birta myndir af einu skipanna sem hann gerði út undir nafninu Geiri Péturs ÞH 344. Þær koma úr myndasafni Olgeirs sonar hans sem … Halda áfram að lesa Geiri Péturs
Páll Jónsson
2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Línuskipið Páll Jónsson GK 7 er hér á útleið frá Grindavík á dögunum en myndina tók Jón Steinar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution









