Bjargfugl RE 55

6474. Bjargfugl RE 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Grásleppubáturinn Bjargfugl RE 55 kemur hér til hafnar í Reykjavík en hann er gerður út af samnefndu fyrirtæki. Plastgerðin sf. í Kópavogi smíðaði bátinn fyrir Kjartan Kjartansson árið 1982 og hefur hann alla tíð borið sama nafn. Báturinn var lengdur árið 1996 og mælist 8 brl. að … Halda áfram að lesa Bjargfugl RE 55 →

Jón Pétur RE 411

2033. Jón Pétur RE 411. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Jón Pétur RE 411 kemur hér til hafnar í Reykjavík í gær en báturinn er á grásleppuveiðum þessa dagana. Jón Pétur var smíðaður fyrir Ólaf Eggert Pétursson hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1987. Báturinn var lengdur tíu árum síðar og mælist 10,42 brl.. að stærð. Með … Halda áfram að lesa Jón Pétur RE 411 →

Manni ÞH 81

1515. Manni ÞH 81 ex Sigurfari ÍS 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Manna ÞH 81 frá Þórshöfn þar sem hann stendur uppi við slippinn á Húsavík. Manni hét upphaflega Kópur ÍS 10 og var smíðaður árið 1978 af Baldri Halldórssyni bátasmið á Hlíðarenda við Akureyri. Hans fyrsta heimahöfn var Suðureyri við Súgandafjörð … Halda áfram að lesa Manni ÞH 81 →

Hafdís ÞH 12

5434. Hafdís ÞH 12. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Baldur Pálsson bátasmiður á Húsavík smíðaði Hafdísi ÞH 12 fyrir Jóstein Finnbogason árið 1951 og var hún sveinstykki Baldurs í bátasmíðinni. Hafdís var smíðuð úr furu og eik, opinn súgbyrðingur 1,36 brl. að stærð. Jósteinn hana alla tíð en hann gaf Sjóminjasafninu á Húsavík bátinn árið 1993. Með … Halda áfram að lesa Hafdís ÞH 12 →

Jón Ásbjörnsson á landleið

2755. Jón Ásbjörnsson RE 777 ex Ragnar SF 550. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Jón Steinar tók þessar myndir í morgun af Jóni Ábjörnssyni RE 777 sullast á móti austanbárunni á landleið til Grindavíkur í morgun. Aflinn hjá honum var um 7-8 tonn eftir tæpar tvær lagnir. Jón Ásbjörnsson RE 777 var smíðaður í Bátagerðinni Samtak … Halda áfram að lesa Jón Ásbjörnsson á landleið →

Ásgeir ÞH 98

5481. Ásgeir ÞH 98. Ljósmynd úr safni Viðars Eiríkssonar. Ásgeir ÞH 98 var smíðaður af Svavari Þorsteinsyni skipasmið á Akureyri árið 1961. Hann smíðaði bátinn fyrir Þórð Ásgeirsson og Magnús Andrésson á Húsavík en Ásgeir var tæplega 5 brl. að stærð. Doddi og Maggi áttu bátinn í tíu ár en þá seldu þeir hann Hreiðari … Halda áfram að lesa Ásgeir ÞH 98 →