Ásgeir ÞH 98

5481. Ásgeir ÞH 98. Ljósmynd úr safni Viðars Eiríkssonar.

Ásgeir ÞH 98 var smíðaður af Svavari Þorsteinsyni skipasmið á Akureyri árið 1961. Hann smíðaði bátinn fyrir Þórð Ásgeirsson og Magnús Andrésson á Húsavík en Ásgeir var tæplega 5 brl. að stærð.

Doddi og Maggi áttu bátinn í tíu ár en þá seldu þeir hann Hreiðari Jósteinssyni á Húsavík sem nefndi bátinn Vilborgu ÞH 98.

Hreiðar átti Vilborgina í um ellefu ár en þá seldi hann Gesti Halldórssyni bátinn sem fékk nafnið Árný ÞH 98. Gestur átti Árný til ársins 1988 er hann seldi hann innanbæjar. Kaupandinn var Ólafur Sigurpálsson og fékk báturinn nafnið Hulda ÞH 98.

Það kom að því að báturinn færi frá Húsavík en hann var seldur til Bakkafjarðar árið 1990 og hafði þá verið gerður út frá Húsavík í 39 ár.

Á Bakkafirði fékk hann nafnið Gná NS 87 en báturinn var tekinn af skipaskrá vorið 1994. (Heimild aba.is)

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s