2999. Dúddi Gísla GK 48 ex Hulda GK 17. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Línubáturinn Dúddi Gísla GK 48 frá Grindavík kom úr róðri í dag og tók Jón Steinar þessa myndasyrpu af bátnum á landleið. Samkvæmt ljósmyndara var hann var hálf tregur hjá honum í dag, afli dagsins um 5 tonn. Dúddi Gísla GK 48 … Halda áfram að lesa Myndasyrpa af Dúdda Gísla á landleið í dag
Flokkur: Smábátar
Geirfugl GK 66
2500. Geirfugl GK 66 ex Oddur á Nesi ÓF 176. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Hér sjáum við línubátinn Geirfugl GK 66 á landleið til Grindavíkur á dögunum. Geirfugl GK 66 hét upphaflega Ósk KE 5. Hann var smíðaður hjá Seiglu ehf. í Reykjavík árið 2004 og er af gerðinni Seigur 1400. Hann er 14 metra … Halda áfram að lesa Geirfugl GK 66
Ágúst RE 61 í Reykjavíkurhöfn
1260. Ágúst RE 61 ex Jóhann Pálsson SU 30. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Þessi mynd var tekin í blíðskaparveðri við Reykjavíkurhöfn í aprílbyrjun fyrir 22 árum síðan. Í forgrunni hennar er Ágúst RE 61 og handan við hann má m.a sjá og glitta í Reykjaborgina, Hafnarbergið, Eyrúnu, Þerney og Sæbjörgu. Um Ágúst er það að … Halda áfram að lesa Ágúst RE 61 í Reykjavíkurhöfn
Tryggvi Eðvars á landleið
2400. Tryggvi Eðvars SH 2 ex Hafdís SK 4. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Línubáturinn Tryggvi Eðvars SH 2 er hér á landleið til Grindavíkur í kvöld en hann er í eigu Nesvers ehf. og er með heimahöfn í Ólafsvík. Hann hefur verið að rótfiska að undanförnu og var aflinn í dag 12-13 tonn sem fengust … Halda áfram að lesa Tryggvi Eðvars á landleið
Þórdís GK 68
2818. Þórdís GK 68 ex Venni GK 606. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Handfærabáturinn Þórdís GK 68 er á heimstími á þessum myndum Jóns Steinars frá því í gær. Báturinn er gerður út af Guggunni ehf. frá Grindavík en hann var smíðaður árið 2011 og hét áður Venni GK 606. Upphaflega hét hann Korri KÓ … Halda áfram að lesa Þórdís GK 68
Særif SH 25
2947. Særif SH 25 ex Indriði Kristjáns BA 751. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Línubáturinn Særif SH 25 frá Rifi sést á þessum myndum sigla út frá Grindavík í dag. Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 46B, hét áður Indriði Kristins BA 751 og var gerður út af Þórsbergi ehf. á Tálknafirði. Melnes ehf. í Snæfellsbæ … Halda áfram að lesa Særif SH 25
Trausti EA 98
396. Trausti EA 98 ex Sigurður Pálsson ÓF 66. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Trausti EA 98 frá Akureyri kemur hér til hafnar á Siglufirði sumarið 2015 en hann var þá gerður út til strandveiða. Um bátinn má lesa nánar á aba.is en hér er mynd af honum þegar hann hét Sigurður Pálsson ÓF 66. Með … Halda áfram að lesa Trausti EA 98
Katrín dregur línuna undan Hópsnesi
1890. Katrín GK 266 ex Una GK 266. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Jón Steinar tók þessar myndii af línubátnum Katrínu GK 266 þar sem hann var að draga línuna skammt undan Hópsnesinu. Kallarnir virtust vera að fiska vel en hér má lesa nánar um bátinn sem Stakkvík ehf. gerir út. 1890. Katrín GK 266 ex Una … Halda áfram að lesa Katrín dregur línuna undan Hópsnesi
Halldór á flot
2790. Halldór NS 302 ex Áki í Brekku SU 760. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Þá fer grásleppuvertíðin að hefjast og í gær var Halldór NS 302 sjósettur á Húsavík en þar hefur báturinn staðið uppi frá því í haust. Það er GPG Seafood sem á og gerir bátinn út sem hefur heimahöfn á Bakkafirði. Með … Halda áfram að lesa Halldór á flot
Gunnar Sveinn GK 237
694. Gunnar Sveinn GK 237 ex Gígjasteinn SH 237. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Gunnar Svein GK 237 í Njarðvíkurslipp haustið 1987 en hann var með heimahöfn í Sandgerði. Báturinn, sem var 14 brl. að stærð, hét upphaflega Níels Jónsson EA 106 og var smíðaður úr eik og furu í Skipasmíðastöð KEA árið … Halda áfram að lesa Gunnar Sveinn GK 237









