
Grásleppubáturinn Bjargfugl RE 55 kemur hér til hafnar í Reykjavík en hann er gerður út af samnefndu fyrirtæki.
Plastgerðin sf. í Kópavogi smíðaði bátinn fyrir Kjartan Kjartansson árið 1982 og hefur hann alla tíð borið sama nafn.
Báturinn var lengdur árið 1996 og mælist 8 brl. að stærð.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution