Samningur um smíði nýs rannsóknaskips undirritaður

Tölvumynd af rannsóknarskipinu sem ætlað er að koma í stað rs. Bjarna Sæmundssonar. Í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands samþykkti Alþingi í júní 2018 þingsályktun um að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra væri falið að hefja undirbúning að smíði hafrannsóknaskips sem ætlað er að koma í stað rs. Bjarna Sæmundssonar. Eftir nær þriggja ára vinnu við hönnun … Halda áfram að lesa Samningur um smíði nýs rannsóknaskips undirritaður →

Reginn ÁR 228

1102. Reginn ÁR 228 ex Reginn HF 228. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022. Reginn Ár 228 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn en myndina tók Sigurður Davíðsson skipverji á Steinunni SF 10 í morgun. Reginn hét upphaflega Símon Olsen ÍS 33 og var smíðaður 1970 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði. Hefur einnig borið nöfnin … Halda áfram að lesa Reginn ÁR 228 →

Sighvatur og Daðey á Húsavík um árið

975. Sighvatur GK 57 - 2617. Daðey GK 777. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Þessi mynd var tekin 16. október árið 2004 og sýnir línubátinn Daðey GK 777 koma til hafnar á Húsavík. Utan á Þvergarðinum liggur línuskipið Sighvatur GK 57 þar sem verið var að ísa hann eftir löndun. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Sighvatur og Daðey á Húsavík um árið →

Landað úr Níelsi um árið

1357. Níels Jónsson EA 106 ex Arnarnes ÍS 133. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Hér er verið að landa úr netabátnum Níelsi Jónssyni EA 106 á Hauganesi í marsmánuði árið 2007. Báturinn hét upphaflega Arnarnes ÍS 133 og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri fyrir samnefnt fyrirtæki á Ísafirði. Hann var afhentur þann 2. … Halda áfram að lesa Landað úr Níelsi um árið →

Við bryggju í Ólafsvík

Bátar við bryggju í Ólafsvík. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér gefur að líta þrjá vertíðarbáta við bryggju í Ólafsvík, sennilega á vetravertíð 1983 en myndin hefur birst áður á síðunni. Allir tengdust þeir fiskverkuninni Hróa í Ólafsvík þegar myndin var tekin, Geiri Péturs ÞH 344 og Sigþór ÞH 100 lögðu upp hjá Hróa eins og fleiri … Halda áfram að lesa Við bryggju í Ólafsvík →