219. Ljósfari GK 184 ex Víðir II GK 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ljósfari GK 184 liggur hér við bryggju í Sandgerði en það var Útgerðarfélagið Barðinn hf. sem átti hann og gerði út. Upphaflega aflaskipið Víðir II GK 275 úr Garði en hann var smíðaður í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Jónsson á Rafnkelsstöðum í Garði. Báturinn … Halda áfram að lesa Ljósfari GK 184
Flokkur: Bátar
Víðir II GK 275
219. Víðir II GK 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Víðir II GK 275 var smíðaður í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Jónsson á Rafnkelsstöðum í Garði. Báturinn hét þessu nafni í 30 ár en í febrúarmánuði 1984 var Rafn hf. skráður eigandi. Árið 1990 fékk hann nafnið Ljósfari GK 184 og síðar bar hann nöfnin Njarðvík KE … Halda áfram að lesa Víðir II GK 275
Hafdís ÍS 25
1415. Hafdís ÍS 25 ex Fróði SH 15. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafdís ÍS 25 var einn Slippstöðvarbátanna sem smíðaðir voru á árunum 1970-1975 og hét upphaflega Fróði SH 15. Fróði var smíðaður fyrir Víglund Jónsson í Hróa hf. í Ólafsvík. Fróði var 143 brl. að stærð búinn 887 hestafla MWM aðalvél. Hann var yfirbyggður árið … Halda áfram að lesa Hafdís ÍS 25
Fanney SK 83
619. Fanney SK 83 ex Hrafnsey SF 8. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Fanney SK 83 lætur hér úr höfn á Húsavík vorið 2003 og kallinn í brúnni var Þórður Birgisson. Báturinn hét upphaflega Jón Jónsson SH 187 frá Ólafsvík og var smíðaður í Skipasmíðastöð KEA á Akureyri 1959. Hann var smíðaður fyrir Halldór Jónsson útgerðarmann … Halda áfram að lesa Fanney SK 83
Ársæll
1014. Ársæll ÁR 66 ex Dúi ÍS 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Ársæll ÁR 66 heldur hér til veiða frá Þorlákshöfn sumarið 2011 en hann var á humarveiðum. Báturinn hét upphaflega Ársæll Sigurðsson GK 320 og var með heimahöfn í Hafnarfirði. Síðar hét hann lengi vel Arney KE 50 frá Keflavík en lesa má nánar um bátinn … Halda áfram að lesa Ársæll
Sigurður Lárusson SF 110
1043. Sigurður Lárusson SF 110 ex Vísir SF 64. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sigurður Lárusson SF 110 var gerður út af Mars ehf. á árunum 1994-1998. Fyrirtækið keypti bátinn, sem hét þá Vísir SF 64, af Jóni Gunnari Helgasyni, Sólveigu Eddu Bjarnadóttur og Stefáni Arngrímssyni á Hornafirði Upphaflega hét báturinn Hafdís SU 24 og var með … Halda áfram að lesa Sigurður Lárusson SF 110
Sigþór ÞH 100
185. Sigþór ÞH 100 ex Sigurpáll GK 375. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1989. Sigþór ÞH 100 kemur hér að landi á Húsavík með síldarfarm og árið gæti verið 1989. Síldin var að öllum líkindum fryst til beitu hjá FH. Sigþór ÞH 100 hét upphaflega Sigurpáll GK 375 og var smíði no.46. frá Marstrands Mekaniska Verkstad A/B. … Halda áfram að lesa Sigþór ÞH 100
Sigurborg SH 12
1019. Sigurborg SH 12 ex Sigurborg HU 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Rækjubáturinn Sigurborg SH 12 kemur hér til hafnar á Húsavík í haustbrælu árið 2011. Sigurborg SH 12 var þá í eigu Soffaníasar Cecilssonar ehf. í Grundarfirði og landaði mikið á Húsavík. Sigurborg hét upphaflega Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 frá Neskaupstað, smíðaður í Hommelvik í Noregi … Halda áfram að lesa Sigurborg SH 12
Sigurborg AK 375
1019. Sigurborg AK 375 ex Freyja RE 38. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurborg Ak 375 frá Akranesi landar hér síld í Grindavík haustið 1985 að mig minnir. Sigurborg AK 375 upphaflega Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 frá Neskaupsstað, smíðaður í Hommelvik í Noregi 1966. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri … Halda áfram að lesa Sigurborg AK 375
Jökull ÞH 299
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessar myndir sem nú birtast teknar í dag þegar Jökull ÞH 299 lét úr höfn á Húsavík áleiðis í slipp á Akureyri. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 metrar og breiddin 10 metrar. Hann … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 299









