Þórsnes við bryggju á Húsavík

2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Línu- og netaskipið Þórsnes SH 109 liggur hér við bryggju á Húsavík í lok júlímánaðar árið 2017. Þórsnes hafði komið til heimahafnar í Stykkishólmi í júní sama ár en það var keypt notað frá Noregi. Eigandi Þórsnes ehf. í Stykkishólmi. Þórsnesið er 880 brúttótonna línu- … Halda áfram að lesa Þórsnes við bryggju á Húsavík →

Grímsnes kemur að landi í gær

89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Grímsnes GK 555 kemur hér að landi í Grindavík í gær en báturinn er gerður út af Maron ehf. til netaveiða. Það var fínasta veður en þegar að norðanáttin lendir á móti krappri sunnan bárunni getur hann orðið ansi úfinn eins og sjá … Halda áfram að lesa Grímsnes kemur að landi í gær →

Sighvatur í kröppum dansi

1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línuskipið Sighvatur GK 57 lét úr höfn í Grindavík í dag í blíðuveðri, norðan 6 metrum. En þegar að norðanáttin lendir á móti krappri sunnan bárunni getur hann orðið ansi úfinn eins og sjá má á þessum flottu myndum sem Jón Steinar tók. 1416. … Halda áfram að lesa Sighvatur í kröppum dansi →

Kristinn Friðrik GK 58

102. Kristinn Friðrik GK 58 ex Siggi Bjarna GK 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Vélbáturinn Kristinn Friðrik GK 58 kemur hér að landi í Sandgerði á vetrarvertíðinni árið 2004. Báturinn var gerður út af Skipeyri ehf. og var með heimahöfn í Garðinum. Haukur Sigtryggur sendi eftirfarandi miða: 0102....Hrafn Sveinbjarnarson II. GK 10. TF-UY. Skipasmíðastöð: Mandal … Halda áfram að lesa Kristinn Friðrik GK 58 →

Erlingur í slipp í Neskaupstað

1379. Erlingur SF 65 ex Haförn EA 955. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Hér má sjá Erling SF 65 þar sem hann er í slipp í Neskaupstað sumarið 2004 en þegar þarna var komið við sögu var hann í eigu Skinneyjar-Þinganess hf. á Höfn. Hér má lesa sögu bátsins en hann hét upphaflega Kópanes BA 99. … Halda áfram að lesa Erlingur í slipp í Neskaupstað →

Valdimar SH 106

1487. Valdimar SH 106 ex Alli Júl ÞH 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Rækjubáturinn Valdimar SH 106 frá Grundarfirði liggur hér við bryggju á Húsavík sumartið 2003. Valdimar, sem var í eigu Snæfells ehf., hét upphaflega Ásbjörg ST 9 og var smíðaður í Stykkishólmi árið 1977.Lesa má um sögu bátsins hér. Með því að smella … Halda áfram að lesa Valdimar SH 106 →

Þorvarður Lárusson SH 129

185. Þorvarður Lársusson SH 129 ex Sigþór ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Rækjubáturinn Þorvarður Lárusson SH 129 liggur hér í höfn á Dalvík í júníbyrjun árið 2004. Hann var í eigu Snæfells ehf. sem keypti hann í ársbyrjun 2002. Upphaflega Sigurpáll GK 375 sem var smíði no.46. frá Marstrands Mekaniska Verkstad A/B. í Marstrand … Halda áfram að lesa Þorvarður Lárusson SH 129 →

Stokksey ÁR 40

1037. Stokksey GK 40 ex Dagfari GK 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Stokksey ÁR 40 kemur að bryggju á Húsavík vorið 2003 en báturinn var á netum ef minnið er rétt. Upphaflega Dagfari ÞH 70 smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi.  Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. … Halda áfram að lesa Stokksey ÁR 40 →