Stjarnan og Ólafur Tryggvason á Hornafirði

202. Stjarnan RE 3 - 162. Ólafur Tryggvason SF 60. Ljósmynd Ágúst Guðmundsson. Á þessari mynd Ágústs Guðmundssonar sem hann tók á Höfn í Hornafirði má sjá Stjörnuna RE 3 og utan á henni Ólafur Tryggvason SF 60. Í fjarska er Gissur hvíti SF 55 að ég held. Ólafur Trygvason SF var smíðaður í Noregi 1960 … Halda áfram að lesa Stjarnan og Ólafur Tryggvason á Hornafirði

Gísli Kristján ÁR 35

378. Gísli Kristján ÁR 35 ex Guðjón Árnason HU 12. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Gísli Kristján Ár 35, sem hér sést koma til hafnar í Reykjavík, var smíðaður árið 1906 í Noregi. Í Íslensk skip segir að báturinn hafi verið 7 brl. upphaflega, byggður úr eik og furu og 16 hestafla Dan vél. Eigandi Árni Bergsson Ólafsfirði … Halda áfram að lesa Gísli Kristján ÁR 35

Helga Guðmunds ÞH 230

1373. Helga Guðmunds ÞH 230 ex Frosti ÞH 230. Ljósmynd Þorgrímur Aðalgeirsson. Helga Guðmunds ÞH 230 var smíðuð hjá Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri árið 1974. Báturinn var smíðaður fyrir Frosta h/f á Grenivík í og fékk nafnið Frosti ÞH 230. Báturinn sem er 29 brl. að stærð, var seldur Pálma Karlssyni á Húsavík árið … Halda áfram að lesa Helga Guðmunds ÞH 230

Bárður SH 81 kom til landsins í morgun

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2019. Hinn nýi Bárður SH 81 kom til landsins í morgun en hann lagðist að bryggju í Hafnarfirði á tíunda tímanum. Guðmundur St. Valdimarsson tók á móti honum með myndavélinni og sendi þessar myndir til síðunnar. Bárður SH 81 var smíðaður í Bredgaard bátasmiðjunni í Rødby í Danmörku og … Halda áfram að lesa Bárður SH 81 kom til landsins í morgun

Pétur Jónsson TH 50

723. Pétur Jónsson TH 50. Ljósmynd Gunnar Jónsson. Pétur Jónsson TH 50 var smíðaður úr eik fyrir Útgerðarfélagið Barðann h/f á Húsavík í Danmörku árið 1955. Hann var 53 brl. að stærð og upphaflega með 296 hestafla Buda díeselvél. Báturinn var seldur í nóvember 1969 Hraðfrystihúsi Stokkseyrar h/f á Stokkseyri og fékk hann nafnið Vigfús … Halda áfram að lesa Pétur Jónsson TH 50

Ný Steinunn SF 10 kom til heimahafnar í gær

2966. Steinunn SF 10. Ljósmynd Siddi Árna 2019. Steinunn SF 10, nýr togbátur í skipastól Skinneyjar-Þinganess, kom í gær til heimahafnar á Höfn í Hornafirði. Skipið er smíðað í skipasmíðastöðinni Vard í Aukra í Norgegi, eitt sjö systurskipa en sex þeirra eru komin til landsins. Einungis Þinganes SF 25 er ókomið en það er einnig … Halda áfram að lesa Ný Steinunn SF 10 kom til heimahafnar í gær

Bátar í Hafnarfjarðarhöfn

Bátar í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessa fallegu vetrarmynd við Hafnarfjarðarhöfn um síðustu helgi. Hún sýnir báta við bryggju og þar fer fyrir miðri mynd Þorsteinn ÞH 115 frá Raufarhöfn. Fyrir innan hann er Jökull SK 16 og utan á honum er Gullfari HF 290. Aftan við Jökul er Drífa GK … Halda áfram að lesa Bátar í Hafnarfjarðarhöfn