Frøya F-140-BD. Ljósmynd Trefjar 2020. Raymond Bjørkås útgerðarmaður frá Båtsfjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan bát frá Bátasmiðjunni Trefjum ehf. í Hafnarfirði. Báturinn, sem nefnsit Fr er af gerðinnni Cleopatra 36B og verður Raymond sjálfur skipstjóri bátnum en þrír verða í áhöfn hans. Nýi báturinn, sem heitir Frøya, er 11 metrar að … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36B til Båtsfjord
Author: Hafþór Hreiðarsson
Diezeborg kom í morgun
IMO 9225586. Diezeborg ex Msc Marmara. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hollenska flutningaskipið Diezeborg kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Þetta er önnur ferð skipsins hingað en það kom einnig í september á sl. ári með hráefni fyrir PCC. Skipið var smíðað árið 2000, það er 133 metra langt, 16 metra … Halda áfram að lesa Diezeborg kom í morgun
Sóley ÞH 349
1688. Sóley ÞH 349 ex Fúsi SH 161. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sóley ÞH 349, sem á þessum myndum sést koma til hafnar á Húsavík, hét upphaflega Fúsi SH 161 og var smíðaður á Fáskrúðsfirði árið 1985. Það var Guðlaugur Einarsson skipasmiður sem smíðaði þennan rúmlega 8 brl. bát fyrir Pétur Inga Vigfússon á Hellisandi. Smíðaefni … Halda áfram að lesa Sóley ÞH 349
Aldey ÞH 380
962. Aldey ÞH 380 ex Votaberg SU 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Rækjubáturinn Aldey ÞH 380 var gerður út frá Húsavík um hríð en það var Íshaf hf. sem gerði hana út. Upphaflega hét báturinn Óskar Halldórsson RE 157 og var smíðaður í Zandaam í Hollandi fyrir Ólaf Óskarsson útgerðarmann í Reykjavík. Hann nefndi hann … Halda áfram að lesa Aldey ÞH 380
Sveinbjörn Jakobsson SH 10
260. Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Þessi myndasyrpa sýnir þegar Sveinbjörn Jakobsson SH 10, reyndar skráður SH 104 þegar þarna var komið við sögu, kom til Húsavík eftir að Norðursigling keypti hann. Þetta var 1. nóvember árið 2006 en báturinn lagði upp í siglinguna til Húsavíkur, frá Ólafsvík, laugardaginn 7. október en … Halda áfram að lesa Sveinbjörn Jakobsson SH 10
Steinunn SH 167 með fullfermi
1134. Steinunn SH 167 ex Ingibjörg RE 10. Ljósmynd Alfons Finnsson 2020. Það var ansi góður dagur hjá köllunum á Steinunni SH 167 enn þeir komu með fullfermi, eða rúm 84 tonn, að landi í Ólafsvík í gærkveldi. Steinunn SH 167 er á dragnót sem fyrr og fékkst aflinn í fjórum hölum á Breiðafirði. Alfons … Halda áfram að lesa Steinunn SH 167 með fullfermi
Hrafn GK 111 kom að landi í Grindavík undir kvöld
1401. Hrafn GK 111 ex Ágúst GK 95. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Það er mikil stemming í höfnum við Reykjanesið þessa dagana og margir að róa. Línuskipið Hrafn GK 111 kom að landi í Grindavík undir kvöld og tók Jón Steinar þessa flottu myndasyrpu af honum. Hrafn GK 111 var með fullfermi, það er rúm … Halda áfram að lesa Hrafn GK 111 kom að landi í Grindavík undir kvöld
Júlíus Geirmundsson ÍS 270
1977. Júlíus Geirmundsson ÍS 270. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Þessar myndir af Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 tók Hólmgeir Austfjörð á Vestfjarðarmiðum í síðustu viku. Júlíus Geirmundsson ÍS 270, sem var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Gryfia í Stettin í Póllandi árið 1989, er 57,20 metrar á lengd og 12,10 metrar á breidd. Hann er búinn 3340 hestafla … Halda áfram að lesa Júlíus Geirmundsson ÍS 270
Viking Enterprice kom við í Grindavík
Viking Enterprice. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Þjónustubáturinn Viking Enterprice kom við í Grindavík gær en hann er á leið vestur á Tálknafjörð frá Djúpavogi þar sem hann hefur verið við vinnu að undanförnu. Báturinn, sem skráður er í Leirvík á Hjaltlandseyjum, hefur verið hér á Íslandi síðan í júlí á síðastliðnu sumri við vinnu … Halda áfram að lesa Viking Enterprice kom við í Grindavík
Björg EA 7
2894. Björg EA 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Nú birtast hér nokkrar myndir sem voru teknar haustið 2017 þegar Björg EA 7 kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri. Björg EA 7, sem er í eigu Samherja hf., kom til Akureyrar eftir siglingu frá Tyrklandi þann 31. október. Björg EA 7 var síðust í … Halda áfram að lesa Björg EA 7









