Marta Ágústsdóttir GK 14

967. Marta Ágútsdóttir GK 14 ex GK 31. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Hér koma nokkrar myndir af Mörtu Ágústsdóttur GK 14, sem var í eigu Eldhamars ehf., koma til hafnar í Grindavík þann 10. mars árið 2009. Upphaflega Keflvíkingur KE 100 og var hann fyrstur í röð átján báta sem Þjóðverjar smíðuðu fyrir Íslendinga í Boizenburg … Halda áfram að lesa Marta Ágústsdóttir GK 14

Tómas í brælu

2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Frystitogari Þorbjarnar hf., Tómas Þorvaldsson GK 10, er hér á toginu á Vestfjarðarmiðum í vikunni, myndirnar tók Hólmgeir Austfjörð. Togarinn var smíðaður í Noregi árið 1992 fyrir Skagstrending hf. á Skagaströnd og hét þá Arnar HU 1. Arnar var seldur til Grænlands árið 1995 … Halda áfram að lesa Tómas í brælu

Eldeyjar Hjalti GK 42

1125. Eldeyjar Hjalti GK 42 ex Vöttur SU 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eldeyjar Hjalti GK 42 var smíðaður hjá Einar S. Nielsen Mek. Verksted A/S í Harstad í Noregi og afhentur á árinu 1968. Bar hann upphaflega nafnið Palomar T-22-SA en árið 1970 keypti Útgerðarfélagið Óðinn h/f á Suðureyri við Súgandafirði bátinn til Íslands. Hann … Halda áfram að lesa Eldeyjar Hjalti GK 42

Aðalbjörg II RE 236

1414. Aðalbjörg II RE 236 ex Vinur EA 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Aðalbjörg II RE 236 kemur að bryggju í Reykjavíkurhöfn á níunda áratug síðustu aldar. Einhverra hluta vegna á ég ekki margar brúklegar myndir af þessum bát undir þessu nafni en upphaflega hét hann Vöttur SU 3. Báturinn var smíðaður í Bátasmiðjunni Vör hf. … Halda áfram að lesa Aðalbjörg II RE 236