
Togskipið Sturla GK 12 lét úr höfn í Grindavík síðdegis í dag. Það voru SSA 10 metrar og þungur sjór í honum ennþá eftir að síðasta lægð gekk yfir. Ölduduflið sagði ölduhæðina 7,3 metra.
Við svona aðstæður er viðbúið að menn fái aðeins á trýnið skrifaði ljósmyndarinn með myndunum.
Þorbjörn hf. keypti skipið til Grindavíkur frá Vestmannaeyjum árið 2020.
Það var smíða í Póllandi árið 2007 fyrir Berg-Huginn ehf. og fékk nafnið Vestmannaey VE 444. Eftir að ný Vestmannaey VE 54 kom til landsins sumarið 2019 fékk skipið nafnið Smáey VE 444.




Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution