
Besa ehf. í Grindavík hefur fest kaup á Huldu GK 17 og gefið bátnum nafnið Dúddi Gísla GK 48. Myndina tók Jón Steinar í dag þegar verið var að merkja bátinn.
Gamli Dúddi Gísla gekk upp í kaupin á Huldu.
Dúddi Gísla GK 48 er af gerðinni Cleopatra Fisherman 40BB og er 11,99 metra langur. Mælist 29,5 BT að stærð. Smíðaður fyrir Blakknes ehf. í Trefjum í Hafnarfirði árið 2021.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.