Arnarnúpur ÞH 272

1556. Arnarnúpur ÞH 272 ex Drangur SH 511. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þarna leggur Arnarnúpur ÞH 272 upp frá Húsavík en heimahöfn hans var Raufarhöfn, gerður út af Jökli hf. þar í bæ. Upphaflega Sölvi Bjarnason BA 65, smíðaður á Akranesi fyrir Tálkna hf. á Tálknafirði, afhentur í marsmánuði 1980. Sölvi Bjarnason, sem var 405 brl. … Halda áfram að lesa Arnarnúpur ÞH 272 →

Keilir

2946. Keilir. Ljósmynd Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson 2023. Þessa flottu mynd af olíuskipinu Keili tók Þorsteinn Eyfjörð skipverji á Hákoni EA 148 í vikunni þegar Keilir kom til Vestmannaeyja. Keilir er í eigu Olíudreifingar og var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Hann er 496 brúttótonn að stærð og kom til landsins í febrúarmánuði árið 2019. … Halda áfram að lesa Keilir →

Guðrún Þorkelsdóttir SU 211

2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 ex Qavak GR 2 1. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2023. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 kemur svona fagurblá til Vestmannaeyja í gær en myndina tók Tryggvi Sigurðsson. Guðrún Þorkelsdóttir ehf. keypti skipið haustið 2017 en það hét áður Qavak GR 2 1 og var í eigu dótturfélags Brims á Grænlandi. Upphaflega hét … Halda áfram að lesa Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 →

Hákon að dæla og Þrándur í Götu fyrir stafni

Loðnu dælt um borð í Hákon EA 148 og Þarándur í Götu fyrir stafni. Ljósmynd Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson 2023. Fékk þessa mynd senda rétt í þessu en hún var tekin um borð í loðnuskipinu Hákoni EA 148 frá Grenivík. Kallarnir fengu 300 tonna kast af góðri loðnu, 70% kerling og hrognafyllingin 19% sem ætti að … Halda áfram að lesa Hákon að dæla og Þrándur í Götu fyrir stafni →

Halldór Sigurðsson ÍS 14

1440. Halldór Sigurðsson ÍS 14 ex Siggi Sveins ÍS 29. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Halldór Sigurðsson ÍS 14 hét upphaflega Sólfaxi SU 12 og var smíðaður á Fáskrúðsfirði árið 1975. Hann var seldur til Akureyrar árið 1977 og hét þar Sólfaxi EA 75. Báturinn, sem er 27 brl. að stærð, fékk nafnið Halldór Sigurðsson ÍS 14 … Halda áfram að lesa Halldór Sigurðsson ÍS 14 →

Guðbjörg GK 517

1262. Guðbjörg GK 517 ex  Óskar ÍS 68. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðbjörg GK 517 kemur hér að landi í Reykjavík um árið en þar átti báturinn lengi heimahöfn sem Rúna RE 150. Báturinn hét upphaflega Sjöfn ÞH 142 og var smíðuð 1972 fyrir Sjöfn s/f á Grenivík af Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri. Hér má lesa sögu … Halda áfram að lesa Guðbjörg GK 517 →

Maya

Maya TF-94-NK. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Maggi Jóns sendi þessar myndir af nýjum og glæsilega rauðum bát í Hafnarfjarðarhöfn. Maya TF-94-NK heitir hann og er með heimahöfn í Hammefest í Noregi. Maya er af gerðinni Cleopatra 36 og smíðuð hjá Trefjum í Hafnarfirði. Maya TF-94-NK. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Maya TF-94-NK. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. … Halda áfram að lesa Maya →