6836. Jón Jak ÞH 8 - 6969. Lilja ÞH 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér gefur að líta strandveiðibátana Jón Jak ÞH 8 og Lilju ÞH 21 þar sem kallarnir voru að taka olíu eftir róður gærdagsins. Farþegar að tínast um borð í hvalaskoðunarbátinn Garðar í baksýn en hvorki gaf veður til strandveiða né hvalaskoðunar … Halda áfram að lesa Strandveiðibátar taka olíu
Author: Hafþór Hreiðarsson
Andey BA 125
1170. Andey BA 125 ex Andey SH 242. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Andey BA 125 hét upphaflega Trausti ÍS 300 frá Suðureyri við Súgandafjörð og var smíðaður í Stálvík árið 1971. Hann hafði smíðanúmer 16 hjá Stálvík og var smíðaður eftir teikningu Ágústs G. Sigurðssonar. 1973 er Trausti seldur til Keflavíkur, kaupendur er Magnús Þórarinsson, Jónas … Halda áfram að lesa Andey BA 125
Jón Jak ÞH 8
6836. Jón Jak ÞH 8 ex Fagranes NS 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Jón Jak ÞH 8 kemur hér að landi á Húsavík í dag en það er Guðmundur Annas Jónsson sem gerir hann út. Báturinn, sem er tæpar 6,29 BT að stærð, var smíðaður árið 1987 í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði. Hann hét … Halda áfram að lesa Jón Jak ÞH 8
Síldarvinnslan kaupir Vísi hf.
2957. Páll Jónsson GK 7 flaggskip Vísis hf. í Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Síldarvinnslan (SVN) hefur náð samkomulagi um kaup á öllu hlutafé útgerðarfélagsins Vísis í Grindavík. Kaupin eru háð fullnægjandi niðurstöðu áreiðanleikakönnunar ásamt samþykki hluthafafundar SVN og Samkeppniseftirlitsins. Í tilkynningu SVN til Kauphallarinnar kemur fram að viðskiptin nemi um 31 milljarði króna. Kaupverð hlutafjár er … Halda áfram að lesa Síldarvinnslan kaupir Vísi hf.
Sænes EA 75
1824. Sænes EA 75. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sænes EA 75 á veiðislóðinni um árið en báturinn kom nýr til Dalvíkur haustið 1988. Sænes var smíðað fyrir Rán hf. í Svíþjóð og var 110 brl. að stærð. Báturinn var seldur til Grenivíkur árið 1992 og síðan úr landi árið 1995. Hann mun vera í Eistlandi í … Halda áfram að lesa Sænes EA 75
Náttfari á landleið
993. Náttfari kemur úr hvalaskoðunarferð í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Náttfari er hér á landleið úr hvalaskoðunarferð á Skjálfanda í dag. Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4. Þróttur, sem var fyrsti báturinn sem Skipavík smíðaði, hét ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en Norðursigling keypti bátinn árið … Halda áfram að lesa Náttfari á landleið
Hvalaskoðunarbátar á Skjálfanda
Hvalaskoðunarbátar á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Á þessari mynd sem tekin var um hádegisbil má sjá þrjá hvalaskoðunarbáta halda út á Skjálfandsa með ferðamenn. Þetta eru fv. Faldur, Andvari og RIB báturinn Kjói. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Hvalaskoðunarbátar á Skjálfanda
Stakasteinn GK 132
1972. Stakasteinn GK 132 ex Lilli Lár GK 132. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Stakasteinn GK 132 kemur hér að landi í Sandgerði fyrir nokkrum vikum en hann er gerður út af HVJ ehf. og með heimahöfn í Sandgerði. Stakasteinn, sem er 6,79 BT að stærð, var smíðaður í Svíþjóð árið 1988. Hann hét upphaflega … Halda áfram að lesa Stakasteinn GK 132
Gullberg VE 292
2730. Gullberg VE 292 ex Gardar H-34-AV. Ljósmynd Óskar Franz 2022. Óskar Franz tók á dögunum þessar flottu myndir af Gullberginu VE 292, nýja uppsjávarveiðiskipi Vinnslustöðvarinnar, sem áður hét Gardar H-34-AV. Á vef VSV segir ma. um skipið: Gullberg er gríðarlega öflugt skip, smíðað árið 1998 en er mikið endurnýjuð í stóru og smáu, vel … Halda áfram að lesa Gullberg VE 292
Sævaldur ÞH 216 kemur til hafnar
6790. Sævaldur ÞH 216 ex Hafey SK 194. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Sævaldur ÞH 216 kemur hér til hafnar á Húsavík í vikunni en það er Einar Ófeigur Magnússon sem á hann og gerir út. Sævaldur hét upphaflega Gunnar HF 139 og var smíðaður í Garðarbæ árið 1986. Á vefnum aba.is má lesa um … Halda áfram að lesa Sævaldur ÞH 216 kemur til hafnar









