Christina E

IMO 9554573. Christina E M-150-HO. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Norska uppsjávarveiðiskipið Christina E M-150-HO frá Fosnavaag liggur hér við Bökugarðinn á Húsavík þann 18. febrúar árið 2018. Þá voru nokkur norsk skip við loðnuveiðar á Skjálfanda og þurftu kallarnir á þessu að koma nótinni á land og í viðgerð. Christina E var smíðuð hjá Karstensens … Halda áfram að lesa Christina E →

Fridtjof Nansen kom í morgun til Húsavíkur

IMO 9813084. Fridtjof Nansen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Annað skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun og þar var á ferðinni Fridtjof Nansen sem einmitt var fyrsta skip sumarsins í fyrra. Fridtjof Nansen er svokallað leiðangursskip sem HX Expeditions gerir út og ber nafn norska land­könnuðar og vís­inda­mannsins, Fridtjof Nan­sen. Skipið er tví­orku (hybrid) skip og var afhent … Halda áfram að lesa Fridtjof Nansen kom í morgun til Húsavíkur →

Stafnes KE 130

2459. Stafnes KE 130 ex Sjöfn NS 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Stafnes KE 130 kemur hér að landi í marsmánuði árið 2006 en báturinn var gerður út til netaveiða. Báturinn hét áður Sjöfn NS 123 og var smíðaður árið 2000 af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda fyrir Fiskiðjunna Bjarg ehf. á Bakkafirði. Hér má lesa … Halda áfram að lesa Stafnes KE 130 →

Hafnarvík ÁR 113

951. Hafnarvík ÁR 113 ex Vörðunes GK 45. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafnarvík ÁR 113 hét upphaflega Friðrik Sigurðsson ÁR 17 og var báturinn smíðaður í Danmörku árið 1963. Haukur Sigtryggur sendi miða: 0951….Friðrik Sigurðsson ÁR 17… TF-IP. Skipasmíðastöð: ? Marstal. Danmörk. 1963. 1970 = Brúttó: 77. U-þilfari: 66. Nettó: 22. Lengd: 23,23. Breidd: 5,85. Dýpt: … Halda áfram að lesa Hafnarvík ÁR 113 →

Von

1432. Von ÞH 54 ex Vilborg ÞH 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014, Hér er grásleppubáturinn Von ÞH 54 að leggja að flotbryggju í Húsavíkurhöfn vorkvöld eitt árið 2014. Von var smíðuð í Neskaupstað árið 1975 og ber nafnið Iða ÞH 321 í dag Báturinn er  6 brl. að stærð og hét upphaflega Þórey NK 13.  Síðan Þórey … Halda áfram að lesa Von →

Kópanes EA 164

1985. Kópanes EA 164 ex Kópanes SH 164. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Kópanes EA 164 er hér á siglingu á Eyjafirði vorið 2005 enn hann var þjónustubátur fyrir fiskeldi í firðinum. Báturinn hét upphaflega Freyr ST 11 og var smíðaður hjá Vélsmiðju Ol Olsen í Njarðvík árið 1989. Árið 1993 hét báturinn Njörður KE 208 … Halda áfram að lesa Kópanes EA 164 →