1868. Haraldur Kristjánsson HF 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Frystitogarinn Haraldur Kristjánsson HF 2 liggur hér við bryggju í Hafnarfirði sem var hans heimahöfn en togarinn var smíðaður í Noregi fyrir Sjólastöðina. Smíðin fór fram hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S, Flekkefjord í Noregi og kom skipið til heimahafnar í Hafnarfirði 23. mars árið 1988. Haraldur Kristjánsson HF … Halda áfram að lesa Haraldur Kristjánsson HF 2
Day: 14. maí, 2026
Sjóli HF 1
1833. Sjóli HF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Frystitogarinn Sjóli HF 1 er hér við bryggju í Hafnarfirði um árið en hann var gerður út af Sjólastöðinni þar í bæ. Sjóli var smíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S, Flekkefjord í Noregi og kom skipið í fyrsta skipti til heimahafnar í Hafnarfirði 21. september árið 1987. … Halda áfram að lesa Sjóli HF 1
Egill SH 195
1246. Egill SH 195 ex Tungufell SH 31. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Egil SH 195 áður en hann var yfirbyggður en þarna var m.a nýbúið að lengja bátinn, setja á hann bakka og skipta um brú. Egill hét upphaflega Fylkir NK 102 og var smíðuð í Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1972 fyrir … Halda áfram að lesa Egill SH 195
Helganes ST 11
163. Helganes ST 11 ex Háhyrningur BA 233. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Helganes ST 11 hét upphaflega Vinur ÍS 102 og var smíðaður fyrir Hnífsdælinga í Þýskalandi árið 1960. 101 brl. að stærð í upphafi en síðar mældur niður í 88 brl. en það var gert árið 1974. Vinur fékk nafnið Páll Pálsson ÍS 101 árið … Halda áfram að lesa Helganes ST 11



