Húni ÍS 68

1149. Húni ÍS 68 ex Sævaldur EA 203. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Húni ÍS 68 hét upphaflega Ingi GK 148 og var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. í Vestmannaeyjum árið 1971. Hann er 14 brl. að stærð.

Báturinn hefur borið mörg nöfn í gegnum tíðina en Húnanafnið bar hann árin 1994 til 2022, heimahöfnin fyrst á Ísafirði en síðar í Bolungarvík og Súðavík.

Um bátinn sem ber nafnið Frídel ST 13 í dag má lesa nánar hér.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution


Færðu inn athugasemd