Sæunn HU 30

6917. Sæunn HU 30 ex Sæunn GK 660. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018.

Sæunn HU 30 hét upphaflega Anna RE 217 og var smíðuð hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1987.

Árið 1991 fékk báturinn nafnið Bára ÍS 141 með heimahöfn á Flateyri.

Það nafn bar hann til ársins 1997 er hann fékk nafnið Sæunn GK 10 með heimahöfn í Grindavík. Árið 2006 varð Sæunn GK 66. Ári síðar breyttist það í GK 660.

Árið 2013 varð Sæunn KÓ 30 en árið síðar HU 30 með heimahöfn á Blönduósi en myndin af bátnum er tekin á Skagaströnd sumarið 2018.

Árið 2023 fékk báturinn núverandi nafn sem er Rós ÍS 30 með heimahöfn í Bolungarvík.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd