Christina E

IMO 9554573. Christina E M-150-HO. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018.

Norska uppsjávarveiðiskipið Christina E M-150-HO frá Fosnavaag liggur hér við Bökugarðinn á Húsavík þann 18. febrúar árið 2018.

Þá voru nokkur norsk skip við loðnuveiðar á Skjálfanda og þurftu kallarnir á þessu að koma nótinni á land og í viðgerð.

Christina E var smíðuð hjá Karstensens Skibsvaerft A/S í Skagen og afhent árið 2011. Skipið er 80,4 metrar að lengd, breidd þess er 16,6 metrar og það mælist 3,623 GT að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd