Sjöfn NS 123

2459. Sjöfn NS 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004.

Þarna var verið að hífa Sjöfn NS 123 upp á bryggju á Húsavík sumarið 2004 en þá um vorið hafði GPG fiskverkun ehf. á Húsavík keypt Fiskiðjuna Bjarg ehf. á bakkafirði og með fylgdi Sjöfnin ásamt Doddu NS 2.

Sjöfn NS 123 var smíðuð árið 2000 af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda, ofan Akureyrar, fyrir Fiskiðjunna Bjarg ehf. á Bakkafirði.

Sjöfn NS 123, sem var smíðuð árið 2000 af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda, ofan Akureyrar seld til Keflavíkur árið 2005 og fékk hún nafnið Stafnes KE 130.

Árið 2007 er báturinn aftur skráður fyrir norðan þegar hann fékk nafnið Gunnþór ÞH 75, heimahöfn Raufarhöfn.

Gunnþór ÞH 75 var tekinn af skipaskrá og seldur til Noregs árið 2010.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd