
Hér er grásleppubáturinn Von ÞH 54 að leggja að flotbryggju í Húsavíkurhöfn vorkvöld eitt árið 2014.
Von var smíðuð í Neskaupstað árið 1975 og ber nafnið Iða ÞH 321 í dag
Báturinn er 6 brl. að stærð og hét upphaflega Þórey NK 13. Síðan Þórey ÞH 11 frá Þórshöfn á Langanesi og því næst Vilborg ÞH 11 frá Húsavík.
Sigurður Kristjánsson á Húsavík eignaðist bátinn vorið 1991 og nefndi Von ÞH 54. Vonina gerði hann út til ársins 2016 er hann keypti Guðný NS 7 og nefndi Ósk ÞH 54.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution