
Helgi Flóventsson ÞH 77 er hér á heimstími til Húsavíkur á sjöunda áratug síðustu aldar en hann var gerður út af Svan h/f á Húsavík.
Báturinn var smíðaður fyrir Svan h/f í Risör í Noregi árið 1962 og kom í stað minni báts sem sökk um 4,5 sjómílur norðvestur af Langanesi 4 ágúst árið 1961. Áhöfnin, 11 skipverjar, björguðust í gúmmíbjörgunarbát og þaðan í Stíganda ÓF 25 frá Ólafsfirði.
Helgi Flóventsson ÞH 77 var seldur frá Húsavík árið 1971 og kaupandinn var Þórður Óskarsson h/f á Akranes sem gaf honum nafnið Sólfari AK 170.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.