7124. Dögg EA 236 ex Alda EA 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Dögg EA 236 kemur að landi í Sandgerðisbót sl. mánudag en það er samnefnt fyrirtæki sem gerir bátinn út. Upphaflega hét báturinn Óskar RE 301 og var smíðaður árið 1987 hjá Trefjum hf. í Hafnarfirði. Hann hefur síðan borið nöfnin Þröstur SH … Halda áfram að lesa Dögg EA 236
Month: maí 2022
Vermland
IMO 9488827. Vermland. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Fóðurflutningaskipið Vermland kom til Grindavíkur í gærkveldi eftir um fjögurra sólarhringa siglingu frá Stórasundi í Noregi. Skipið er fóður fyrir fiskeldi. Vermland var smíðað 2008 og er 88 metrar að lengd og 13,7 metrar á breidd. Það mælist 2,199 GT að stærð. Skipið siglir undir hollensku flaggi … Halda áfram að lesa Vermland
Laxinn á Naustavíkurhólnum
5920. Laxinn ÞH 177 ex Laxinn GK 177. Ljósmynd Hörður Sigurgeirsson 2022. Laxinn á Naustavíkurhólnum voru skilaboðin sem fylgdu þessari mynd sem sýnir Reyni Hilmarsson við handfæraveiðar á Laxinum. Naustavíkurhóllinn er í vestanverðum Skjálfandaflóa. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Laxinn á Naustavíkurhólnum
Góð þátttaka í strandveiðum
Strandveiðibátar á Akureyrarpolli í gær. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessi mynd var tekin á Akureyri í gær og sýnir tvo strandveiðibáta en eins og áður hefur komið hér fram hófst strandveiðitímabilið í gær. Á vef Landssambands smábátaeigenda segir í dag: Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu eru alls 470 bátar komnir með virk leyfi til strandveiða. Af … Halda áfram að lesa Góð þátttaka í strandveiðum
Otter Bank BL 937879
IMO 9219721. Otter Bank BL 937879 ex Rokur FD 1205. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Otter Bank við slippkantinn í dag en hann hét áður Rokur FD 1205 frá Runavík í Færeyjum. Hann hefur ásamt systurskipi sínu, Lerkur FD 1206, verið seldur til Frakklands þar sem heimahöfnin verður Boulogne -Sur-Mer. Skipin eru í klössun í Slippstöðinni … Halda áfram að lesa Otter Bank BL 937879
Hafþór EA 19
7144. Hafþór EA 19 ex Hafþór AK 140. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Hafþór EA 19 kemur hér að landi í Sandgerðisbót í dag, á fyrsta degi strandveiðitímabilsins 2022. Báturinn hét upphaflega Diddó BA 38 en hann var smíðaður hjá Trefjum hf. í Hafnarfirði árið 1989. Síðan þá hefur hann heitið mörgum nöfnum en það … Halda áfram að lesa Hafþór EA 19
Merike í Smugunni
MO 9227534. Merike EK 1802 ex Regina C. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Eiríkur Sigurðsson tók þessa mynd af rækjufrystitogaranum Merike í Smugunni á dögunum. Eiríkur er skipstjóri á Reval Viking sem er í eigu útgerðafyrirtækisins Reyktal líkt og Merike. Merike EK 1802 var smíðaður fyrir Grænlendinga í Danmörku árið 2002 og hét áður Regina C. Togarinn er … Halda áfram að lesa Merike í Smugunni






