Elley EA 250

2657. Elley EA 250 ex Elley GK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022.

Elley EA 250 er hér að færa sig til í Dalvíkurhöfn í gær en það er Markafl ehf. sem gerir bátinn út og er hann skráður með heimahöfn í Grímsey.

Elley EA 250 hét upphaflega Særif SH 25. Hann var smíðaður hjá Trefjum árið 2005 fyrir Melnes ehf. á Rifi.

Árið 2015 fékk báturinn nafnið Sæbliki SH 32 en þá hafði útgerðin fengið nýtt Særif SH 25.

Sumarið 2018 fær báturinn nafnið Elín BA 58 sem hann bar í rúmt ár áður en haustið 2019 fékk báturinn nafnið Óli G GK 50.

Það var svo haustið 2021 sem báturinn fékk nafnið Elley GK 50 og í byrjun þessa árs var hún orðin EA 250.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s