
Jón á Hofi ÁR 42 leggur hér upp í veiðiferð frá Þorlákshöfn en það hefur verið brælustopp síðustu daga.
Jón á Hofi ÁR 42 hét áður Þuríður Halldórsdóttir GK 94 en Rammi hf. keypti skipið af Þorbirninum hf. sumarið 2007.
Upphaflega hét skipið Hafnarey SU 110 frá Breiðdalsvík og var eitt af raðsmíðaskipunum svokölluðu. Smíðað 1983 hjá Þorgeir & Ellert á Akranesi.
Jón á Hofi ÁR 42 er 38,99 metrar að lengd, 8,1 metra breiður og mælist 274 brl./497 BT að stærð.
Skipt var um brú á skipinu fyrir nokkrum árum í Póllandi.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution