
Valdimar GK 195, línuskip Þorbjarnar hf. í Grindavík, er hér að leggja uppí veiðiferð í gær en Jón Steinar tók myndirnar.
Smíðaður í Noregi 1982 og lengdur 1987. Keyptur til landsins 1999 og hét þá Vesturborg GK til að byrja með en fékk síðan Valdimarsnafnið. Hann er 569 BT að stærð.
Hét áður Vestborg, Aarsheim Senior og Bömmelgutt í Noregi.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution







