Víðir EA 423

7758. Víðir EA 423. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Þessar myndir af strandveiðibátnum Víði EA 423 frá Akureyri voru teknar á Siglufirði sumarið 2015. Víðir EA 423, sem er Sómi 870 og rúmar 6 brl. að stærð. Skrokkur bátsins og stýrishús var steypt hjá Bátasmiðjunni Bláfelli í Reykjanesbæ en á vefnun aba.is segir að eigendur hans … Halda áfram að lesa Víðir EA 423

Skonnortan Ópal á Skjálfandaflóa

2851. Ópal á Skjálfandaflóa í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skonnortan Ópal kom til Húsavíkur í kvöld og voru þessar myndir teknar við það tækifæri. Skipið var smíðað af skipasmíðastöðinni Bodenwerft í Damgarten, Þýskalandi árið 1951 sem togari og var við veiðar á Eystrarsalti, í Norðursjó og Barentshafi.  Á 8 árum (1973-1981) var Ópal breytt í … Halda áfram að lesa Skonnortan Ópal á Skjálfandaflóa

Skógafoss kom til Húsavíkur

IMO 9375252.. Skógafoss ex Ice Bird. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Skógafoss kom til Húsavíkur í gær og voru þessar myndir teknar þegar hann sigldi inn Skjálfandann og lagðist að Bökugarðinum. Skógafoss var smíðaður árið 2007 og hét Ice Bird til ársins 2011. Hann er 130 metrar að lengd og 20,6 metra breiður. Mælist 7.545 … Halda áfram að lesa Skógafoss kom til Húsavíkur

Björgúlfur á miðunum

2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N tók þessar myndir á miðunum af Dalvíkurtogaranum Björgúlfi EA 312. Björgúlfur er eins og margir vita eitt fjögurra syst­ur­skip­a sem smíðuð voru fyrir íslendinga hjá Cem­re-skipa­smíðastöðinni í Tyrklandi og afhent á árinu 2017. 2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. … Halda áfram að lesa Björgúlfur á miðunum