
Hér birtast myndir af dragnótabátnum Arnþóri GK 20 koma til hafnar í Sandgerði í júnímánuði árið 2012.
Arnþór GK 20 hét upphaflega Reykjaborg RE 25 og var smíðaður í Skipasmíðastöðinni á Ísafirði árið 1998. Reykjaborgin var lengd um fjóra metra í Ósey í Hafnarfirði árið 2001 en seld til Keflavíkur árið 2005.
Þar fékk hún nafnið Geir KE 6 og var í eigu Útgerðarfélgsins Óskar ehf. sem einnig gerði út Ósk KE 5. Árið 2008 fær báturinn nafnið Arnþór GK 20 sem hann ber á þessum myndum en eigandi hans var Nesfiskur hf. í Garði.
agustson hf. í Stykkishólmi keypti bátinn árið 2017 og nefndi hann Leynir SH 120.
Leynir SH 120 er 21,88 metrar að lengd og mælist 72 brl./107 BT að stærð. Hann er búinn 470 hestafla Cummins frá árinu 1998.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution