Atlanúpur ÞH 270 frá Raufarhöfn var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1975 fyrir Korra h/f á Húsavík og hét Kristbjörg ÞH 44.
Báturinn var seldur Höfða h/f á Húsavík 1992 og fékk báturinn nafnið Kristey ÞH 25.
1997 var Kristey ÞH 25 seld Jökli h/f á Raufarhöfn þar sem báturinn fékk nafnið Atlanúpur ÞH 270 og var gerður út á rækju.
Árið 1998 var Atlanúpur seldur Árnesi h/f í Þorlákshöfn og fékk hann nafnið Keilir GK 145.
Árið 2000 kaupir Siglfirðingur h/f bátinn sem heldur Keilisnafninu en verður SI 145 .

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution