
Skuttogarinn SIL FK0403 liggur við bryggju í Vigo og tók ég þessa mynd af honum þar.
Togarinn var smíðaður árið 1987 og siglir undir bresku flaggi með heimahöfn í Stanley, sem mér sýnist vera á Falklandseyjum.
SIL er 78,5 metra langur, 14 metra breiður og mælist 2,156 GT að stærð.
Sigurgeir frændi minn Pétursson sem lengi hefur verið skipstjóri í Suðurhöfum var með SIL í nokkra mánuði fyrir margt löngu.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution