Capricorn við bryggju

ZDLY. Capricorn FK 050B ex Pescavigo Uno. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019.

Capricorn FK 050B hefur legið við bryggju í Vigoflóanum innanverðum að undanförnu og tók ég þessa mynd í dag.

Eftir að ég hafði rölt um ströndina í klukkustund eða svo og tekið myndir fór ég heim til að setja þær inn í tölvuna og skoða þær betur.

Eftir að hafa setið í dágóða stund kíkti ég á AIS-ið í símanum og þar mátti sjá togarann á stími út flóann. Maður hefði betur hangið lengur við ströndina og náð honum á siglingu.

Hann fór reyndar ekki mjög langt, lagðist að bryggju í Vigo fyrir stundu en þetta er fyrsta fiskiskipið sem ég mynda sem siglir undir fána Falklandseyja.

Togarinn var smíðaður 1977 og hét áður Pescavigo Uno og er 95 metrar að lengd. Breidd hans er 13 metrar og hann mælist 2,511 GT að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd